Föstudaginn 30. nóvember nk. verða slökkviliðsmenn með opið hús frá kl. 17-21 í slökkvistöðinni. Tekið á móti slökkvitækjum til yfirferðar og endurhleðslu. Ýmis eldvarnarbúnaður til sýnis og sölu.
Slökkviliðsmenn leiðbeina um notkun búnaðarins. Björgunarsveitin Þorbjörn verður einnig á staðnum. Boðið verður upp á heitt súkkulaði með rjóma.