Aflaverđmćti eykst

  • Fréttir
  • 27. nóvember 2012

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 108,6 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2012 samanborið við 99,2 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 9,5 milljarða eða 9,5% á milli ára. Á Suðurnesjum hefur aflaverðmæti aukist um 6,8%.

Aflaverðmæti botnfisks var 63,8 milljarðar og jókst um 5,4% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 60,5 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 32,5 milljarðar og jókst um 12,4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 8,5 milljörðum og jókst um 12,2% en verðmæti karfaaflans nam 9,1 milljarði, sem er 8,8% aukning frá fyrstu átta mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 6,7% milli ára og nam 6,1 milljarði króna í janúar til ágúst 2012.

Verðmæti uppsjávarafla nam um 32,8 milljörðum króna í janúar til ágúst 2012, sem er 15,9% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla að verðmæti rúmum 13 milljörðum króna samanborið við 8,7 milljarða fyrstu átta mánuði ársins 2011. Einnig var 2,4 milljarða króna aukning í kolmunnaafla, sem nam um 2,6 milljörðum króna árið 2012. Verðmæti makrílafla drógst saman um 7,9% á milli ára og nam tæpum 13 milljörðum króna í janúar til ágúst 2012. Nær enginn annar uppsjávarafli var veiddur fyrstu átta mánuði ársins 2012, samanborið við gulldepluafla að verðmæti 261 milljón króna á sama tímabili árið 2011. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 7,6 milljörðum króna, sem er 11,2% aukning frá janúar til ágúst 2011. 

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 51,9 milljörðum króna og jókst um 18,5% miðað við fyrstu átta mánuði ársins 2011. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 10,6% milli ára og nam tæpum 15 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 37,2 milljörðum í janúar til ágúst og jókst um 1,4% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 3,8 milljörðum króna, sem er 13,4% samdráttur frá árinu 2011.

Sjá nánar hér á vef Hagstofu Íslands.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!