Ari Auðunn Jónsson frá félagsmiðstöðinni Þrumunni og Hafþór Orri Harðarson frá félagsmiðstöðinni Fjörheimum í Reykjanesbæ sigruðu í Rímnaflæði sem fram fór á vegum SAMFÉS sl. föstudag. Rímnaflæði er keppni í rappi og rímugerð. Það er áralöng hefð fyrir keppninni og hafa margar af skærustu stjörnum rapp heimsins á Íslandi stígið sín fyrstu spor á Rímnaflæði.
Keppnin hefur skapað sér fastan sess í dagskrárliðum félagsmiðstöðva um leið og hún vekur áhuga ungmenna á rappi og gefur því jákvæða umfjöllun. Skilyrði fyrir þátttöku er að lag og texti sé samið af keppendum. Alls tóku 11 félagsmiðstöðvar þátt í keppninni.