Völundur í Grindavík

  • Fréttir
  • 26. nóvember 2012

Á dagskrá RÚV í kvöld kl. 18:25 er þátturinn Völundur sem fjallar um nýsköpun í iðnaði en þetta er annar þáttur af fimm. Þar verður Grindavík áberandi en í þættinum er fjallað um forvitnilega nýsköpun í iðnaði, um framleiðslu alkóhóls sem eldsneyti á bíla, um dýrmætar DNA-flögur sem eru afar mikilvægar, til dæmis í læknavísindunum og um hátæknigróðurhús sem nýta jarðhita, bæði í hefðbundum skala og mjög stórtæk.

 

Fimm forvitnilegir og fjölbreyttir fræðsluþættir um nýsköpun og þróunarstarf í íslenskum iðnaði. Leitað er fanga hjá sextán fyrirtækjum í afar ólíkum iðngreinum, allt frá kaffi- og ullariðnaði til tölvu- og véltæknigreina.

Umsjónarmaður er Ari Trausti Guðmundsson og um dagskrárgerð sá Valdimar Leifsson.  Framleiðandi: Lífsmynd.

Framleitt fyrir Samtök iðnaðarins og RÚV

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir