Sólveig Sigurđardóttir stefnir ađ fullum bata
Sólveig Sigurđardóttir úr Grindavík er lömuđ eftir heilablóđfall en leitar lćkninga
til Noregs
Lífiđ tekur oft óvćnta stefnu og ekki alltaf til góđs. Ţađ fékk Sólveig Sigurđardóttir
úr Grindavík ađ reyna fyrir skemmstu en hún fékk alvarlegt heilablóđfall ţann
19. september sl. Sólveig er nú í endurhćfingu á Heilbrigđisstofnun Suđurnesja
og hefur ţegar náđ undraverđum bata og ţó ađ hún sé ađ mestu lömuđ vinstra megin
í líkamanum getur hún komist flestra leiđa sinna međ ţví ađ ganga viđ staf. Ţrátt
fyrir ţađ er enn ađ miklu ađ keppa og vill hún nú freista ţess ađ ná enn betri
árangri međ taugasvörunarmeđferđ í Noregi. Ţađ ferli er hins vegar kostnađarsamt
og leitar hún ţví eftir stuđningi samborgara sinna.
?Ég var bara heima ađ ţrífa heita pottinn ţegar ég datt niđur og dótturdóttir
mín ţriggja ára kemur ađ mér og kallar inn í hús ađ amma sé sofandi í heita pottinum,?
segir Sólveig í samtali viđ Víkurfréttir um daginn örlagaríka, en hún hafđi áđur
fundiđ fyrir höfuđverkjum sem voru greindir sem mígreni.
Fólkiđ hennar hringdi strax á sjúkrabíl og var Sólveig komin í ađgerđ innan viđ
klukkustund síđar. Slagiđ var mjög alvarlegt ţar sem 4 sm breiđur ćđagúlpur sprakk
viđ heila og segir Sólveig sjálf ađ tvísýnt hafi veriđ um ađ hún lifđi af fyrstu
nóttina.
?Ég var í gjörgćslu í nokkra daga og vissi ekki af mér, svo var ég flutt á Grensás
og byrjađi í ćfingum 9. október. Svo byrjađi ég hér suđur frá sem er allt annađ.
Ég kem hingađ á morgnanna og ćfi, og get svo fariđ heim á kvöldin, en ađstađan
og sjúkraţjálfarateymiđ hérna eru frábćr.?
Ţrátt fyrir ađ góđur árangur hafi náđst segist Sólveig stađráđin í ađ ná frekari
bata. Hún fékk hugljómun fyrir nokkrum vikum ţegar hún las viđtal í Fréttablađinu
viđ mann sem hafđi veriđ í svipađri stöđu en náđ töluverđum bata međ ţví ađ leita
óhefđbundinna lćkninga. Hann fór út til Noregs ţar sem hann fór í svokallađa taugasvörunarmeđferđ
hjá taugasérfrćđingnum Geir Flatabř. Sú međferđ felst í ţví ađ rafskaut eru tengd
viđ höfuđ viđkomandi og hann látinn vinna hugarverkefni af tölvuskjá. Međ ţví
á ađ vera hćgt ađ hleypa taugaskilabođum framhjá skemmdum svćđum í heilanum niđur
í líkamann međ ţví ađ virkja önnur svćđi í heilanum sem hafa ekki veriđ notuđ.
?Ţegar ég las ţetta viđtal hugsađi ég ađ ţetta vćri eitthvađ fyrir mig og varđ
alveg friđlaus,? sagđi Sólveig sem stefndi strax ađ ţví ađ drífa sig út. Mágkona
hennar býr í Noregi, skammt frá Osló, og hefur veriđ í sambandi viđ Flatabř sem
býr í Ulvik ekki langt frá Bergen. Sólveig stefnir ađ ţví ađ halda utan ásamt
manni sínum í lok mánađar en ferliđ gćti tekiđ um 2-3 mánuđi auk ţess sem ţađ
er afar kostnađarsamt. Ţar sem taugasvörunarmeđferđin fellur undir óhefđbundnar
lćkningar kemur ekkert framlag frá Tryggingarstofnun, og ţess vegna hefur styrktarreikningur
veriđ stofnađur fyrir Sólveigu í Sparisjóđnum til ađ létta undir međ ţeim.
?Ţađ er enn ađ nokkru ađ keppa fyrir mig ţví ađ ég get ekkert hreyft vinstri
höndina og er alveg stíf í ökklanum ţó ég sé međ smá hreyfigetu í fótleggnum.?
Henni liggur líka á ađ komast út sem fyrst áđur en höndin festist varanlega.
?Ég geri mér miklar vonir og reyni ađ einbeita mér ađ ţví ađ ţetta muni ganga
og ég fái bata. Ţađ er ţessi bjartsýni og jákvćđni sem hefur skilađ mér úr stólnum
segja lćknarnir mér. Ég ćtla ekki ađ lofa ţví ađ ég komi hlaupandi heim og ég
fer ekki handahlaup ţví ég gat ţađ ekki áđur, en ég kem labbandi heim. Ég lít
björtum augum fram á veginn en ţetta verđur erfitt og ţađ verđur gott ef einhverjir
sjá sér fćrt um ađ leggja mér liđ ţví margt smátt gerir eitt stórt,? segir baráttumanneskjan
Sólveig ađ lokum.
Texti og mynd: Ţorgils Jónsson
Styrktarreikningur Sólveigar er:
1193-05-1260 Kt: 020761-4239