Heilsuleikskólinn Krókur Grindavík auglýsir eftir leikskólakennara í 87,5% starf. Fáist ekki leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Heilsuleikskólinn Krókur er 4 deilda leikskóli með um 100 börn. Í stefnu leikskólans er lögð áhersla á heilsueflingu, frjálsan leik, umhverfismennt og jákvæð samskipti með áherslu á umhyggjusamt námsumhverfi.
Við leggjum ríka áherslu á jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir og því leitum við að samstarfsfólki sem:
Er tilbúið að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans.
Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum.
Er tilbúið að taka þátt í öflugri starfsþróun.
Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um.Nánari upplýsingar veitir:
Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri, sími 426-9998.
Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á:
http://www.leikskolinn.is/krokur/ undir flipanum Um leikskólann > Starfsumsókn.