Bæjarráð leggur til að Grindavíkurbær bjóðist til að vera tilraunasveitarfélag í flutningi málefna eldri borgara frá ríki til sveitarfélaga sem feli m.a. í sér að taka yfir rekstur hjúkrunarheimilisins í Víðihlið og samreka með annarri þjónustu við eldri borgara.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að hefja viðræður við velferðarráðuneytið.
Í kjölfar góðrar reynslu af breytingum í þjónustu við eldri borgara með miðstöð í Víðihlíð/Miðgarði er lagt til að hafin verði vinna við stefnumörkun í þjónustu við eldri borgara til framtíðar í samræmi við hugmyndir um flutning málaflokksins til sveitarfélaga.