Skóla- og félagsþjónustan fékk góða heimsókn í gær á degi íslenskrar tungu. Þá komu nokkrir nemendur Grunnskóla Grindavíkur og lásu ljóð fyrir starfsfólk skrifstofunnar í tilefni dagsins. Upplesturinn var ljómandi skemmtilegur og ljóðin vel valin.