Tveir öflugir dráttarbílar til Jóns og Margeirs
Eftir Kristin Benediktsson
Feđgarnir Jón Margeirsson og Margeir Jónsson fengu afhenta tvo nýja öfluga Volvo
FH 16 dráttarbíla viđ hátíđlega athöfn um helgina á bíla- og vinnuvélasýningu
sem Brimborg hélt í Garđabć fyrir viđskiptavini og velunnara úr ţessari atvinnugrein.
Ţeir eru fyrstu bílarnir sem seldir eru til Íslands af ţessari nýjustu framleiđslu
Volvoverksmiđjanna í Svíţjóđ sem hafa veriđ í fremstu röđ á ţessu sviđi í fjölda
ára.
Ađ sögn ţeirra feđga, sem hafa rekiđ fyrirtćkiđ Jón og Margeir í um 15 ár, eru
bílarnir 660 hestöfl međ togkraft sem er 3100 Nm, sem eru mun aflmeiri bílar en
fyrri gerđir, auk ţess ađ vera búnir bestu ţćgindum sem völ er á fyrir ökumanninn
sem er ćtíđ á langferđum um ţjóđvegi landsins og ţurfa meir og meir ađ gista í
bílunum.
Í bílnum er ný tegund af gírskiptingu frá Volvo sem kallast I-shift. Hún er sjálvirk
og sameinar alla kosti bein- og sjálfskiptingar en umfram allt stuđlar hún ađ
minni eldsneytisnotkun og bćttum aksturseiginleikum. Hún bíđur uppá fjölbreyttari
notkunarmöguleika hvort sem ekiđ er á góđum vegi eđa slćmum, međ mikinn eđa lítinn
farm. Hún rćđur viđ sameiginlega heildarţyngd yfir 60 tonn (130 tonn í sérstökum
tilvikum), auk ţess hafa afköst vökvabremmsunnar veriđ aukin töluvert frá fyrri
útgáfum (recharder).
Jón og Margeir ehf. flutningabílar í Grindavík hafur veriđ starfrćkt frá 1992
og alltaf notast viđ Volvo vöru- og flutningabíla. Margeir byrjađi ađ keyra vörubíl
í Grindaví 1970 og áriđ 1974 eignađist hann sinn fyrsta Volvo og hefur ekiđ á
Volvo síđan.
Myndir: Á myndinni eru forráđamenn Brimborgar ásamt Jóni og Margeiri er bílarnir
voru afhentir. Taliđ frá vinstri: Kristinn, Ólafur, Margeir, Jón og Egill.