Dansleikur verður fyrir eldri borgara næsta laugardagskvöld, frá kl. 21:00-01:00, á Sjómannastofunni Vör. Félag eldri borgara stendur fyrir dansleiknum en hinn vinsæli Hörður harmonikkuleikari mun þenja nikkuna. Eldri borgarar eru hvattir til þess að mæta.
Börn og barnabörn eru hvött til þess að láta eldri borgara sem ekki hafa tölvu endilega vita af dansleiknum.