Þau vilja leggja sitt af mörkum til að safna fyrir MS-félagið á Íslandi og fóru því til Spánar og tóku þátt í 166 kílómetra löngu hlaupi og buðu fólki að heita á sig. Þau eru komin heim og hlupu samtals 458 kílómetra á 26 klukkustundum. Söfnunin stendur enn yfir.
„Við hlupum samtals 458 kílómetra á rúmum 26 klukkutímum og erum harla ánægð með árangurinn. Við hlupum í fjalllendi í nágrenni Granada og Christine og Daníel tókst að klára báða hringi, tvisvar sinnum 83 kílómetra en ég þurfti að hætta eftir 126 kílómetra. Christine fékk fyrstu verðlaun kvenna fyrir 166 km og var eina konan sem kláraði þá vegalengd, en fjórar konur voru skráðar í þá vegalend. Þá var Daníel fjórði í karlaflokknum, svo við getum ekki verið annað en sátt," segir Anna Sigríður Sigurjónsdóttir myndhöggvari, en hún ásamt Christine Buchholz og Daníel Smára Guðmundsyni tók nýlega þátt í hlaupi í Andalúsíu á Spáni sem heitir Ultima Frontera, sem á íslensku þýðir „ystu mörkin" enda er það hvorki meira né minna en 166 kílómetra langt.
Eykur lífsgæði fólks
„Við gerðum þetta til að safna peningum fyrir MS-félagið á Íslandi en þar vantar alltaf peninga. Systir mín er með MS-sjúkdóminn og ég þekki töluvert af fólki sem er með þennan sjúkdóm, svo ég veit hvað það skiptir miklu máli fyrir fólk að geti komið á MS-setrið. En þangað geta sjúklingar komið, sótt æfingar, félagsskap og haft ýmislegt fyrir stafni m.a. að búa til listmuni. Allt þetta gerir lífið innihaldsríkara fyrir þá sem þarna koma. Starfið sem unnið er í MS-félaginu er ómetanlegt og eykur lífsgæði fólks mikið," segir Anna Sigríður sem þekkir af eigin raun að vera langveik, en hún lauk krabbameinsmeðferð í nóvember 2009.
Mikil rigning
Anna Sigríður segir að þau þremenningarnir hafi hlaupið upp og niður á stígum, malarvegum og líka malbiki í hlaupinu á Spáni. Hún játar að þetta hlaup hafi verið rosalega erfitt. „Það rigndi líka mikið og fyrir vikið var mikil drulla sem gerði þetta enn erfiðara. Við þurftum að hlaupa sama hringinn tvisvar og eftir fyrri hringinn, þegar fólk var búið að klára 83 kílómetra, eða tvöfalt maraþon, þá var farið að draga af flestum. Þá var líka freistandi að láta það duga. En það var líka ögrandi að halda áfram og komast að því hvað maður getur teygt mörkin langt."
Margt getur komið upp á
„Ástæðan fyrir því að ég þurfti að hætta eftir 126 kílómetra var sú að ég ég fékk slæma verki í mjöðmina. Ég píndi mig lengi áfram í von um að það lagaðist, sem það ekki gerði. Það var komið myrkur og mikil þoka þegar ég stoppaði og þá kom maður út úr þokunni sem var mjög feginn að sjá mig, því hann gat ekki heldur haldið áfram. Við kúrðum okkur saman í álteppi og biðum þess að verða sótt," segir Anna Sigríður og bætir við að hún hafi verið fyrsta konan í hlaupinu sem fór í gegnum fyrstu stöðina og fékk verðlaunagrip fyrir það.
„Þetta er í annað sinn sem ég reyni við þessa vegalengd en við fórum öll þrjú saman í fyrra líka. Þá luku Christine og Daníel hlaupinu en ég hljóp 80 km. Maður getur ekkert æft þessa vegalengd, fyrst og fremst þarf maður að vera vel undir búinn og í góðri þjálfun, en það getur svo margt komið upp á og dagsformið ræður líka miklu."
Hún segir þær Christine hafa tekið þátt í mörgum ofurhlaupum, bæði hér heima og í útlöndum og að Daníel hafi gert slíkt hið sama, enda einn helsti langhlaupari okkar í áraraðir.
Fólk getur enn lagt inn á söfnunarreikninginn til að leggja MS-félaginu lið: 0115-26-102713, kt. 520279-0169. Einnig er hægt að hringja í síma 901-5010, 5030 eða 5050 og dragast þá 1.000, 3.000 eða 5.000 kr. af símreikningi.
(mbl.is)