Hagyrðingakvöld sem haldið var í Kvikunni síðastliðið laugardagskvöld tókst ljómandi vel. Gestir skemmtu sér konunglega en einvalalið hagyrðinga sá um að hnoða saman vísur. Hagyrðingarnir voru:
Sigurjón V. Jónsson
Ómar Ragnarsson
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Jón Ingvar Jónsson.
Hér koma tvær vísur eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson.
Um meiri- og minni hluta í bænum:
Minn heili virðist heldur illa gerður
svo hræðilega þvælist fyrir mér
að meirihluti minnihlutans verður
meirihluti bæjarstjórnar hér.
Um glæstan árangur í körfubolta:
Liðið við leikinn er natið,
þeir lifa sig vel inn í atið;
þeir eru svo snöggir
og snjallir og glöggir
og heppnir að hitta´ oní gatið.