Stafnes kom til Grindavíkur síðastliðið föstudagskvöld með 12 túnfiska sem skipið veiddi eftir fimm daga túr. Kristján Haraldsson tók þessar myndir við löndunina í Grindavíkurhöfn.
Aflinn fer á markaði í Japan, en mjög hátt verð er greitt fyrir túnfisk í Japan. Skipið var að veiðum um 200 mílur suður af Reykjanesi. Um 21 klukkutíma tók að sigla í land.
Stafnes er eini íslenski báturinn sem stundar túnfiskveiðar um þessar mundir. Hins vegar stunda japönsk skip túnfiskveiðar á svipuðum slóðum. Í síðasta túr veiddi báturinn fjóra fiska, en þessi túr skilaði 12 fiskum. Fiskarnir eru u.þ.b. tveir metrar á lengd og um 205 kíló að þyngd.