Grindvíkingurinn Christine Buchholz var útnefnd ofurhlaupari ársins 2012 í kvennaflokki á uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambands Íslands í gærkvöldi. Ofurhlaupari ársins í karlaflokki var Sigurjón Sigurbjörnsson sem er núverandi Íslandsmeistari í 100km hlaupi.
Christine hefur tekið þátt í nokkrum ofurhlaupum á árinu með glæsilegum árangri.
Á meðal þeirra sem fengu einnig útnefningar voru Ásdís Hjálmsdóttir, Kári Steinn Karlsson og Aníta Hinriksdóttir.
Á myndinni eru Christine og Sigurjón með verðlaunin sín á hátíðinni í gærkvöldi.