Fimmtudaginn 1 .nóvember, kl. 20:00, fáum við góða gesti í heimsókan - þá Hjálmar Sveinsson bókmenntafræðing og borgarfulltrúa og Berg Ebba Benediktsson, lögfræðing og uppistandara með meiru. Þeir ætla að segja okkur frá Elíasi Mar, skáldi og rithöfundi. Hjálmar segir okkur m.a. frá bókinni Vögguvísu og fl. Bergur Ebbi leikur sér með slanguryrði Elíasar á sinn hátt.
Dagskráin er hluti af samstarfsverkefninu Kynning á bókmenntaarfinum sem almenningsbókasöfnin á Suðurnesjum standa fyrir og er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.
Aðgangur er ókeypis og hressing verður í boði Bókasafnsins - Allir velkomnir!