Óskar gćti yfirgefiđ Grindavík

  • Íţróttafréttir
  • 16. október 2012

Óskar Pétursson, markvörður Grindvíkinga, gæti verið á förum frá félaginu. Grindavík féll úr Pepsi-deildinni á dögunum en Óskar íhugar að spila áfram á meðal þeirra bestu. ,,Það heillar óneitanlega að spila áfram í efstu deild og ef ég fæ tækifæri til þess mun ég skoða það mjög vandlega," sagði Óskar við Fótbolta.net í dag.

,,Í Grindavík eru frábært fólk sem sér um deildina og mér hefur alltaf liðið mjög vel í Grindavík. En í ljósi aðstæðna verð ég að huga að framtíð minni í fótboltanum og hvort hún verði í Grindavík eða annarstaðar er óákveðið. Ég skoða allt sem kemur á borðið."

Óskar er 23 ára gamall en hann hefur verið aðalmarkvörður Grindvíkinga undanfarin ár.

Óskar var einnig á mála hjá Ipswich á unglingsárum sínum en hann hefur leikið með bæði U21 og U19 ára landsliði Íslands.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun