Alls bárust 2.508 tonn að landi í Grindavíkurhöfn í september er samdráttur upp á tæp 300 tonn miðað við sama mánuð í fyrra. Þar munar mestu um minni uppsjávarfisk eða tæplega 500 tonnum en talsverð aukning varð í flestum öðrum tegundum, samkvæmt samantekt Hagstofunnar.
Hér má sjá samanburð á nokkrum tegundum á milli ára:
Tegund | September 2011 | September 2012 |
Þorskur | 1.040 | 879 |
Ýsa | 99 | 160 |
Ufsi | 174 | 315 |
Karfi | 270 | 404 |
Gulllax | 216 | 211 |
Annar uppsjávarfiskur | 592 | 131 |
Humar | 38 | 0 |
Langa | 60 | 123 |
Grálúða | 28 | 72 |
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum septembermánuði, metinn á föstu verði, var 10,7% meiri en í september 2011. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 15,3% miðað við sama tímabil 2011, sé hann metinn á föstu verði.
Afli í tonnum
Aflinn nam alls 108.453 tonum í september 2012 samanborið við 105.765 tonn í september 2011.
Botnfiskafli jókst um tæp 4.600 tonn frá september 2011 og nam um 35.300 tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 18.300 tonn, sem er 4.500 tonnum meiri afli en á fyrra ári. Ýsuaflinn nam rúmum 3.200 tonnum sem er rúmlega 500 tonnum minni afli en í september 2011. Karfaaflinn jókst um 123 tonn samanborið við september 2011 og nam rúmum 4.900 tonnum. Tæp 5.000 tonn veiddust af ufsa sem er rúmlega 1.100 tonna aukning frá september 2011. Annar botnfisksafli nam um 3.900 tonnum og dróst saman um 698 tonn frá fyrra ári.
Afli uppsjávartegunda nam tæpum 69.600 tonnum, en 71.200 tonn af uppsjávarafla veiddist í september 2011. Rúmum 54.000 tonnum var landað af síld í septembermánuði, samanborið við 48.400 tonn í september 2011. Um 13.600 tonn veiddust af makríl sem er samdráttur frá fyrra ári um 7.300 tonn.
Flatfiskaflinn var rúm 2.500 tonn í september 2012 sem er aukning um 241 tonn frá sama mánuði árið áður. Skel- og krabbadýraafli nam tæpum 1.000 tonnum sem er samdráttur um 159 tonn frá september 2011.