Bikarmeistararnir áfram
- Fréttir
- 11. desember 2006
Vindar fortíđar léku um hólf og gólf í Sláturhúsinu í kvöld ţegar Grindvíkingar
höfđu sigur á Keflavík B. Lokatölur leiksins voru 88-116 Grindavík í vil en ađeins
tvö stig skildu liđin ađ í hálfleik. Grindvíkingurinn Pétur Guđmundsson lék sinn
kveđjuleik í kvöld en svo skemmtilega vill til ađ hann hóf sinn meistaraflokksferil
einmitt međ Keflavík B.
Liđ Keflavíkur B var skipađ valinkunnum leikmönnum og ţađ voru engar smá kanónur
sem hófu leik á parketinu í Sláturhúsinu. Jón Kr. Gíslason kom upp međ boltann
og honum til ađstođar í bakvarđastöđum voru Guđjón Skúlason og Falur Harđarson.
Albert Óskarsson og Sigurđur Ingimundarson mönnuđu blokkina.
Páll Axel Vilbergsson opnađi leikinn međ ţriggja stiga körfu og bauđ ţannig gömlu
hetjurnar velkomnar til leiks. Sigurđur Ingimundarson minnkađi muninn í 2-3 en
hann gerđi fjögur fyrstu stig Keflavíkur B.
Vel var mćtt á leikinn og viđ hverja körfu sem Keflavík B skorađi var jafnan
mikiđ fagnađ. Búist var viđ ţví ađ Grindavík, sem eiga titil ađ verja, myndu stinga
af snemma leiks en reynsluboltarnir hleyptu ţeim ekki of langt í burtu.
Stađan ađ loknum fyrsta leikhluta var 23-30 fyrir Grindavík en dómarar leiksins
neituđu ađ dćma flautukörfu Fals Harđarsonar gilda er hann skaut frá miđjum leikvellinum,
spjaldiđ ofan í. Mótmćli leikmanna Keflavíkur B og áhorfenda létu ekki á sér standa
en dómarar leiksins stóđu fastir á ţví ađ leiktíminn hefđi veriđ runninn út.
Áfram tókst Keflavík B ađ hanga í pilsfaldi Grindavíkur og komust nokkrum sinnum
yfir í leiknum. Bikarmeistararnir tóku ţó á rás í síđari hálfleik og ţađ reyndist
Keflavík B um megn. Páll Axel fór fyrir ţriggja stiga skotsýningu í ţriđja leikhluta
og Keflavík B hafđi einfaldlega ekki bolmagn til ţess ađ fylgja Grindavík eftir.
Hetjurnar úr Keflavík geta veriđ sáttar viđ sitt hlutskipti í leiknum og sýndu
ađ reynslan getur vegiđ ţungt, í ţađ minnsta fyrstu 20 mínútur leiksins.
Guđjón Skúlason gerđi 16 stig fyrir Keflavík B, Sigurđur Ingimundarson 12, Albert
Óskarsson 9, Falur Harđarson 2 og Jón Kr. Gíslason 1. Stigahćstur var ţó Jermaine
Williams međ 25 stig. Hjá Grindavík gerđi Páll Axel Vilbergsson 25 stig og eru
Bikarmeistararnir komnir áfram í 8-liđa úrslit Lýsingarbikarsins.
Sjá myndasafn frá leiknum í Ljósmyndasafni vf.is hér til hliđar.