Marko og Ţórkatla leikmenn ársins

  • Fréttir
  • 30. september 2012

Lokahóf knattspyrnudeildar UMFG var haldið með pompi og pragt í gærkvöldi í íþróttahúsinu sem búið var að breyta í fínasta skemmtistað. Hápunktur kvöldsins var valið á leikmönnum ársins sem að þessu sinni kom í hlut Markos Valdimars Stefánssonar og Þórkötlu Albertsdóttur.

Alex Freyr Hilmarsson og Rebekka Þórisdóttir voru valin efnilegustu leikmennirnir, Daníel Leó Grétarsson besti leikmaður 2. flokks og Nemanja Latimovic sýndi mestu framfarirnar í 2. flokki. 

Kristín Pálsdóttir stýrði lokahófinu af sinni alkunnu snilld og brá sér í ýmis hlutverk. Sigurður Ingvason smiður og lífskúnstner flutti ljómandi skemmtilegar frumsamdar vísur. Ingibjörg Guðmundsdóttir söngkona sem sló í gegn á sínum tíma með BG og Ingibjörgu steig fram á svið í fyrsta skipti í nokkur ár og tók þrjú lög við feikna undirtektir. Síðan var stiginn dans fram á nótt með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna. 

Efsta mynd: Þórkatla Sif Albergsdóttir og Marko Valdimar Stefánsson, leikmenn ársins.

Verðalaunahafar á lokahófinu. F.v.; Rebekka, Þórkatla Sif, Nemanja, Marko Valdimar, Daníel Leó og Alex Freyr.

Hin landsfræga söngkona Ingibjörg Guðmundsdóttir tók lagið.

Hin landsfræga söngkona Ingibjörg Guðmundsdóttir tók lagið.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!