Síðasta umferð Pepsideildar karla verður á morgun. Grindavík tekur á móti Fylki á Grindavíkurvelli og hefst leikurinn kl. 14:00. Ókeypis er á völlinn því Stakkavík ætlar að bjóða öllum á leikinn.
Leikurinn hefur enga þýðingu fyrir hvorugt lið, Grindavíkur er löngu fallið og Fylkir hefur að engu að keppa nema þá helst að komast upp fyrir KR í töflunni með sigri.
Vonandi teflir fram Grindavík sínum ungu og efnilegu leikmönnum fram í leiknum.
Annað kvöld er svo hið árlega lokahóf knattspyrnudeildar í íþróttahúsinu. Borðapantanir eru í síma 426 8605 eða á umfg@centrum.is. Dagskráin er stórglæsileg:
• Húsið opnar kl. 19:30.
• Borðhald hefst kl. 20:00.
• Skemmtiatriði.
• Ingibjörg (BG og Ingibjörg) syngur nokkur af sínum vinsælustu lögum.
• Happdrætti. Aðalvinningur gjafabréf frá Úrval-Útsýn.
• Verðlaunaafhending.
• Reiðmenn vindanna, SS SÓL ásamt Helga Björns.
• Veislustjóri: Kristín Pálsdóttir.
Miðaverð:
• Matur og dansleikur kr. 4.900
• Dansleikur kr. 2.500
• Aldurstakmark 18 ára.