Hádegisbrunch til styrktar og heiđurs Íţróttasambandi Fatlađra

  • Fréttir
  • 26. september 2012

Hádegisbrunch að hætti matreiðslumeistara Bláa Lónsins verður í boði laugardaginn 29. september kl 12.00 í Bláa Lóninu. Öll innkoma vegna viðburðarins rennur til Íþróttasambands fatlaðra.

Verð er 3.900 krónur fyrir fullorðna, 1.950 krónur fyrir 7-12 ára börn. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Boðskort í Bláa Lónið er innifalið í verði fyrir þá sem bóka fyrir kl. 16.00 föstudaginn 28. september.

Ólympíufararnir verða á staðnum og söngkonan vinsæla, Bríet Sunna, mun flytja nokkur lög.

Bláa Lónið og Íþróttasamband Fatlaðra gerðu með sér samstarfssamning fyrir Ólympíumót Fatlaðra í London í sumar. Samningurinn er til fjögurra ára og gildir fram yfir Ólympíumót Fatlaðra í Ríó 2016.

Hægt er að panta í síma 420 8800 eða senda tölvupóst á sales@bluelagoon.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir