60 milljónir til Grindavíkur

  • Fréttir
  • 26. september 2012

Í gær var var dregið í Milljónaveltu Happdrættis Háskóla Íslands. Veltupotturinn stóð í 60 milljónum króna enda hafði hann ekki gengið út undanfarna fimm mánuði. Skemmst er frá því að segja að potturinn gekk út að þessu sinni, og féll í skaut ríflega fertugs karlmanns á Suðurnesjum að því er fram kemur á heimasíðu happdrættisins. 

Vinningurinn kom á trompmiða sem hann hafði átt í nokkur ár, ásamt fleiri miðum. Einnig voru dregnir út fimm einnar milljónar króna vinningar, allir á selda miða og gengu þeir því allir út.

Milljónaveltan heldur áfram göngu sinni í október, en verður þá á byrjunarreit. 10 milljónir króna byrja þá að velta og getur potturinn því orðið hæst 30 milljónir í lok ársins, gangi hann ekki út fyrr.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun