,,Endurhæfingin gengur vel, við í Grindavíkurliðinu erum á Tenerife núna og Pétur Pétursson er búinn að vera með mig og ég er mjög ánægður með það sem hann er búinn að gera fyrir mig," sagði Ólafur Ólafsson í samtali við Karfan.is í dag. Ólafur meiddist afar illa í úrslitakeppninni á síðustu leiktíð þegar hann lék með Grindavík gegn Stjörnunni í undanúrslitum.
,,Læknirinn segist vera ánægður með hvernig ökklinn hefur þróast og ég get aðeins hlaupið en ekki tekið þátt í neinum æfingum svo ég er bara að hjóla og synda. Það eru bólgur og bjúgur ennþá inni á beininu sem fór úr lið og það er læknirinn hræddastur við," sagði Ólafur þar sem bólgurnar og bjúgurinn geta mögulega sett drep í beinið.
,,Eins og staðan er í dag er ég enn bara stórt spurningamerki en það kemur meira í ljós í nóvember en þá fer ég aftur í sneiðmyndatöku."