Helga Kristjánsdóttir myndlistakona hefur opnað sýningu í Portinu, veitingastað í Kringlunni. Þar sýnir hún verk sín en frá upphafi ferils síns hefur hún einbeitt sér að kraftmiklum og litaglöðum olíumálverkum með innblástur af náttúrunni suður með sjó.
Flest hennar verk eru unnin með olíu á striga og einnig hefur hún notað blandaða tækni. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Helga segist hafa nóg að gera og selur hún myndir sínar um allan heim.
Myndin sem fylgir fréttinni var tekin í fordyri Grindavíkurkirkju í gær þar sem Helga sýndi nokkur verka sinna. Helga er með syni sínum á myndinni.