Vegna slæmrar veðurspár hefur mótanefnd Golfklúbbs Grindavíkur ákveðið að fresta Blue Lagoon open kvennamótinu sem fram átti að fara á morgun laugardaginn 22. september, til næstkomandi laugardags 29. september. GG biðst afsökunar á því að hafa dregið þetta, en „við héldum í vonina um að veðurspáin yrði betri," eins og segir í tilkynningu frá GG.
Engin breyting verður á vinningum og fyrirkomulagi. Við viljum biðja allar þær konur sem voru skráðar að endurskrá sig eftir helgi.