Réttað verður í Þórkötlustaðaréttum laugardaginn 22. september kl. 14:00 og að vanda verður margt um fé og fólk. Haustmarkaður handverksfólks verður starfræktur á svæðinu. Hestateyming á svæðinu. Bæjarbúar eru hvattir til þess að ganga austur í Þórkötlustaðahverfi á nýjum malbikuðum göngustíg sem nær að Þórkötlustaðaréttum.
Bílastæði verða sérmerkt að þessu sinni svo bílar teppi ekki umferð á Suðurstrandarvegi/Austurvegi. Sjá skipulag á myndinni hér að neðan: