MSS í Grindavíkur býður upp á hagnýtt verklegt nám fyrir þá sem vilja vinna efni fyrir prent- og vefmiðla á tölvutæku formi. Kennt er á Adobe forritin: Illustrator (teikning), Photoshop (myndvinnsla) og InDesign (umbrot). Markmið námskeiðsins er að námsmenn nái tökum á grundvallaratriðum hvers forrits og séu í stakk búnir til að vinna einföld verkefni með samþættingu allra forritana og geti komið frá sér hugmyndum á tölvutæku formi. Námskeiðið byggir mest á verklegum æfingum í tölvu og raunverkefnum.
Námskeiðið er 120 kennslustundir, 40 kennslustundir fyrir hvert þeirra þriggja forrita sem kennt verður á. Kennt verður eftir samþykktri námskrá Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins.
Inntökuskilyrði: Námsmenn þurfa að hafa þekkingu á Windows stýrikerfinu og reynslu af Internetnotkun. Ekki er krafist þekkingar á teikni-, myndvinnslu- eða umbrotsforritum.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 18-21:30 og hefst kennsla 27. sept.
Leiðbeinandi: Alex Jonsson hjá Hvíta húsinu
Verð: 21.000
Nánari upplýsingar gefur Ragga í síma 412-5967 eða á ragga@mss.is