Bćttar almenningssamgöngur til Grindavíkur

  • Fréttir
  • 19. september 2012

Nýtt samgöngukort fyrir sveitarfélögin á Suðurnesjum verður kynnt á næstu dögum. Boðið verður upp á þrjár fastar ferðir til Grindavíkur á virkum dögum og verður fjöldi ferða til Grindavíkur endurskoðaður áramótin með tilliti til reynslunnar sem þá verður komin. Ferðunum mun fjölga næsta vor en samningurinn gildir í eitt ár.

Með þessari útgáfu eru almenningssamgöngur á svæðinu efldar til muna en samkvæmt samkomulagi við VMST verður boðið upp á sex ferðir í flugstöðina og á atvinnusvæði í vetur.

Tímatöflur og leiðakort sem sent verður til allra heimila á Suðurnesjum næstu daga gildir til áramóta eða þar til annað verður ákveðið. Mikil gerjun er í samgöngumálum á Suðurnesjum þar sem sveitarfélögin eiga gott samstarf og stefnir í verulegar bætur og fjölgun ferða á öllu svæðinu á næsta ári.

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum þakkar VMST samstarfið og vonar að það verði til að fjölga atvinnutækifærum og minnka atvinnuleysi á svæðinu, segir í tilkynningu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun