Á dögunum fór fram fyrsta haustæfing slökkviliðsins í Grindavík. Þangað mættu vaskir sveinar til að æfa sig í reykköfun og notkun á klippibúnaði. Alls er 21 slökkviliðsmaður í slökkviliðinu. Fimm nýir hafa komið inn á þessu ári og eru þeir að ljúka námi í Brunamálaskólanum og verða þar með fullgildir slökkviliðsmenn.
Á æfingunni var slökkviliðsmönnunum skipt í tvo hópa. Annar hópuirnn fékk það verkefni að klippa bíl í sundur til þess voru nýtt öll tæki og tól sem eru til staðar í klippuskáp slökkviliðsins. Hinn hópurinn fór í reykköfun í æfingaskúrnum á lóð slökkvistöðvar þar sem verkefnið var að leita að dúkkum og var vel tekið á því.
Slökkviliðið æfir að jafnaði einu sinni í mánuði en fyrirkomulagið er með öðrum hætti yfir sumartímann.