Glćsilegt kvennamót á Húsatóftavelli

  • Íţróttafréttir
  • 18. september 2012

Blue Lagoon Open, eitt glæsilegasta kvennamót ársins í golfi, verður haldið á Húsatóftavelli í Grindvík laugardaginn 22. september. Bláa Lónið er styrktaraðili allrar golfklúbbana á Suðurnesjum og leggur til glæsilega vinninga til mótsins. Á meðal vinninga eru Blue Lagoon snyrtivörur , dekur og matur. Nú þegar eru hátt í 70 konur skráðar í mótið.

Halldór Einir Smárason, varaformaður Golfklúbbs Grindavíkur, sagði að gott samstarf við öfluga styrktaraðila eins og Bláa Lónið væri ómetanlegt fyrir starfsemi golfklúbbana á svæðinu. „Samstarfið gerir okkur m.a. kleift að halda góð mót sem styðja við starfsemi klúbbsins," segir Halldór.

Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Bláa Lónsins, segir að samstarfið við klúbbana hér á Suðurnesjum hafi verið afar ánægjulegt. „Okkar framlag felst m.a. í því að leggja til vinninga fyrir hin ýmsu mót sem klúbbarnir halda. Öflugt starf golfklúbbanna er mikilvægt fyrir samfélagið í heild sinni og þá er barna- og unglingastarfið ómetanlegt."


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir