Á meðfylgjandi teikningu má sjá skipulag Þórkötlustaðarétta á laugardaginn. Bílastæði verða á tveimur stöðum:
1. Norðan við Austurveg, við innkeyrsluna inn í hverfið.
2. Sunnan við réttirnar sjálfar og á veginum út á Hópsnes.
Bændur verða með sitt eigið bílastæði vestan megin við réttirnar.
Hestateyming er sunnan við réttirnar.
Gestir Þórkötlustaðarétta eru beðnir að virða bílastæðamerkingar.