Náđu mynd af nýjum Benz í Grindavík

  • Fréttir
  • 17. september 2012

Markaðsdeild Mercedes-Benz er væntanlega í nokkru uppnámi eftir að áhugaljósmyndari tók myndir af nýjustu bifreið fyrirtækisins í Grindavík.Þar var teymi frá Benz á ferð, að prófa nýjan Mercedes Benz A-klassa bíl. Búið er að fara með útlit bílsins eins og mannsmorð en það er venjan í þessum bransa.

Ljósmyndarinn, þýskur bílaáhugamaður, hafði millilent á Íslandi á leið heim frá Bandaríkjunum. Hann rak upp stór augu þegar hann sá bílinn. Hann smellti strax af myndum og þýska blaðið Spiegel birti þær.

Ekki átti að kynna bílinn og sýna hann almenningi fyrr en á bílasýningunni í París síðar í þessum mánuði eða á bílasýningunni í Detroit í byrjun næsta árs og því er Spiegel búið að þjófstarta. Birtu þeir átta myndir af bílnum og eru sumar þeirra teknar við Keflavíkurflugvöll.

Nýi Benz bíllinn, sem á að heita CLA, er fjögurra dyra Coupé og á að keppa við bíla af sömu stærð frá Audi og BMW. Sérfræðingar sem Spiegel vitna til, segja nýju línuna eiga að leggja grunninn að framtíðarvelgengni Benz.

(frétt af ruv.is)


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!