Jón Axel stigahćstur er Davidson mćttu ofjörlum sínum
Jón Axel stigahćstur er Davidson mćttu ofjörlum sínum
Körfubolti
16. mars 2018
Það má segja að lið Davidson háskólans hafi mætt ofjörlum sínum í "March madness" í gær þegar þeir töpuðu gegn sterku liði Kentucky, 73-78. Það er þó ekki hægt að hengja þetta tap á okkar mann, Jón Axel Guðmundsson, en hann var sjóðandi heitur í seinni hálfleik og setti 6 þrista í röð og endaði lang stigahæstur með 21 stig. Hann bætti svo við 5 fráköstum og 3 stoðsendingum, en hann spilaði allar 40 mínútur leiksins.
Davidson hefur því lokið keppni í ár en mega vera stoltir af sínum árangri og þá ekki síst Jón Axel, sem átti glæsilegt tímabil og ljóst að framtíðin er björt hjá honum í boltanum.