Félagsmiðstöðin Þruman auglýsir eftir starfsfólki í tímavinnu í vetur, frá 14. september 2015 til 30. apríl 2016.
Um er að ræða vaktir seinni hluta dags og/eða á kvöldin einu sinni til tvisvar í viku og á einstaka viðburði Þrumunnar og Samsuð/Samfés yfir veturinn.
Umsækjendur þurfa að:
- vera orðnir tvítugir að aldri
- vera góðar fyrirmyndir
- hafa öflugt hugmyndflug varðandi tómstundastarf ungmenna
- vera brosmildir og jákvæðir með eindæmum
- hafa almenna skynsemi í lagi
- hafa ökuréttindi
- hafa hreint sakavottorð
- ekki neyta nokkurs konar tóbaks.
Umsókn ásamt ferilskrá skal berast eigi síðar en 21. ágúst 2015 á netfangið thorsteinng@grindavik.is. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttafélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 14. september n.k.
Nánari upplýsingar um störfin veita Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri (thorsteinng@grindavik.is /420 1100) og Jóhann Árni Ólafsson, frístundaleiðbeinandi (johannarni@grindavik.is/420 1180).