Selskógur varð til að frumkvæði Ingibjargar Jónsdóttur kvenfélagskonu með meiru. Plantaði hún fyrst þar árið 1957 og gaf svæðinu nafnið Selskógur.
Nemendur á yngsta stigi verja alltaf einum degi þarna á vorin og endalaust hægt að finna sér eitthvað skemmtilegt til að gera. Á meðan beðið er eftir grilluðum pylsum er leikið, leitað að kanínum, refum, könglum, gengið upp á fjallið og þannig mætti lengi telja. Myndirnar tala sínu máli.
Börnin ganga líklega um 6 kílómetra frá skólanum og til baka og mörg hver bæta því við að fara upp á fjallið með Maríu Jóhannesardóttur í broddi fylkingar.
Starfsfólk Hópsskóla og allir nemendur sameinast í góðri útiveru þennan dag.
Ungir menn í góðum leik.
Örugg með regnhlíf í nestisstund.
Ævintýraheimur.
Stillt sér upp fyrir myndatöku!
Þessir ungu menn fóru a.m.k. tvisvar upp á fjallið þennan dag og fóru létt með það!
Umkringdur dásamlegum litum.
Það bera sig allir vel!
Pylsurnar klikka ekki.
Grillmeistarar.
Á góðu spjalli.
Erum búnar að fara upp á Þorbjörn!
Margt leynist í skóginum.