Í dag fór fram úrslitaviðureign spurningakeppni unglingastigs en þar mættust lið stúlkna í 10.bekk annars vegar og lið stráka í 10.bekk hins vegar. Það var mikil spenna í loftinu og salurinn fullur af áhorfendum.
Viðureignin var æsispennandi og voru það stelpurnar sem leiddu lengst af. Áhorfendur voru vel með á nótunum, mættu með trommur og studdu liðin með ráðum og dáðum.
Nemendur stóðu sig afar vel en að lokum voru það strákarnir sem sigu fram úr og unnu 38-25 sigur. Lið strákanna er skipað þeim Viktor, Alexander, Alex og Freyþór var leikari. Lið stelpnanna skipuðu þær Hekla Eik, Aníta, Júlíana og Nadía leikari.
Við óskum strákunum til hamingju með sigurinn og stelpunum fyrir góða frammistöðu. Þá viljum við þakka þeim Valdísi dómara, Rannveigu spyrli og Hrafnhildi stigaverði fyrir sitt framlag auk þeirra sem lögðu sitt af mörkum með því að semja spurningar. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá keppninni í morgun.