Þorgrímur Þráinsson hefur verið tíður og góður gestur hjá okkur í Grunnskóla Grindavíkur síðustu árin. Hann hefur komið og rætt við nemendur á sinn heillandi og skemmtilega hátt um hina ýmsu hluti lífsins, kynnt bækur sínar og gefið nemendum góð ráð þegar skrifa á sögur.
Hann kom einmitt í heimsókn í dag og ræddi við nemendur 10.bekkjar. Fór hann yfir markmiðssetningu og ýmislegt fleira því tengdu. Hann ræddi svefn og næringu og hvaða áhrif þeir hlutir hafa á vinnu okkar í námi og starfi auk þess sem hann kom inn á aðra áhugaverða hluti.
Krakkarnir hlustuðu af athygli en Þorgrímur sýnir nemendum meðal annars myndbönd og myndir og notar sögur af einstaklingum sem hann hefur komist í kynni við til dæmis í sínu starfi í kringum íslenska landsliðið.