Miðvikudaginn 2.október var Forvarnadagurinn haldinn í fjórtánda sinn í grunnskólum landsins og í níunda sinn í framhaldsskólum.
Forvarnadagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands. Hann er haldinn á hverju hausti í næst öllum grunnskólum landsins og er beint sérstaklega að nemendum í 9.bekk og á fyrsta ári í framhaldsskólum.
Á forvarnadaginn ræða nemendur um hugmyndir sínar og tillögur um samverustundir með fjölskyldu og æskulýðs- og íþróttastarf, en þetta eru á meðal verndandi þátta gegn áfengi og vímuefnum.
Við í Grunnskóla Grindavíkur fengum góða gesti. Jóhann Árni Ólafsson, forstöðumaður Þrumunnar, ræddi við nemendur og þá komu þau Dagur Kár Jónsson, leikmaður Grindavíkur í körfubolta og Sigurbjörg Vignisdóttir sömuleiðis og ræddu ýmis forvarnamál. Þá var Sigurður Bergmann frá lögreglunni einnig á svæðinu.
Dagurinn heppnaðist vel og voru nemendur virkir í umræðum.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá deginum.