Síðasti Stuðboltafundur vetrarins var haldinn í vikunni. Helga Fríður Garðarsdóttir starfandi námsráðgjafi stýrði fundinum. Hún þakkaði Stuðboltunum fyrir veturinn og ræddi um hvað gaman hefði verið að taka þátt í þessu lýðræðislega verkefni með þeim í vetur og sérstaklega væri gaman að sjá hvernig þau lærðu að sitja fundi, æfðust í að tala fyrir hönd síns bekkjar, hlusta á aðra og virða skoðanir hinna þó þau væru ekki alltaf sammála.
Guðbjörgu M. Sveinsdóttir skólastjóri sat fundinn og ræddi ýmis mál við nemendurna. Meðal annars um hlutverk Stuðbolta utan fundartíma. Hversu mikilvægt það væri að þeir væru talsmenn inni í sínum bekkjum. Guðbjörg talaði einnig um tungumálið okkar íslenskuna. Hún hvatti Stuðbolta til að passa upp á tungumálið okkar og varast enskuslettur í málfari. Guðbjörg fór yfir einkunnarorðin okkar - virðing, vellíðan og virkni og benti nemendum á hversu mikilvægt væri að halda orðunum á lofti og ræddi síðan um heimalestur og mikilvægi þess að lesa. Að lokum var Stuðboltum svo boðið upp á gómsætar súkkulaðikökur frá Hérastubbi bakara með þakklæti fyrir starfið í vetur.
Hér má lesa um hlutverk Stuðboltanna og allar fundargerðir þeirra.