Undanúrslit í spurningakeppni miðstigsins fóru fram í dag og því ljóst hvaða bekkir mætast í úrslitaviðureigninni í fyrramálið. Mikil spenna var í báðum viðureignum og stemmningin í salnum góð.
Í fyrri viðureigninni mættust 5.R og 4.K. Fór svo að 4.K vann eins stigs sigur og keppir því til úrslita á morgun. Vel að verki staðið hjá þeim en krakkarnir í 5.R stóðu sig sömuleiðis með miklum sóma.
Í seinni viðureigninni mættust svo 6.SJ og 6.SK. Þar var einnig mikil spenna og skiptust liðin á að hafa forystuna. Að lokum voru það þó nemendur 6.SJ sem höfðu betur og kemst því í úrslitaviðureignina.
Úrslitin fara fram á morgun, 6.SJ verða gul en 4.K blá. Allir bekkir miðstigs munu mæta á sal til að fylgjast með viðureigninni auk nemenda í 3.bekk sem er sérstaklega boðið til að koma og horfa á.
Viðureignin hefst klukkan 8:15 og eru foreldrar velkomnir til að fylgjast með.