Ákveðið hefur verið að dagarnir 8. – 12. apríl n.k. verði farsímalausir dagar í Grunnskóla Grindavíkur.
Við vorum með slíka daga í nóvember og höfum ákveðið að hafa aftur slíka daga á vorönn. Þessa daga mæta hvorki nemendur né starfsfólk með farsíma í skólann. Símar verða hvorki leyfðir í kennslustundum né frímínútum. Tilgangurinn með þessu er að efla félagsleg samskipti. Þruman opin líkt og venjulega og vinaliðar verða starfandi skv. skipulagi.
Við vonum að þið ágætu foreldrar farið vel yfir þetta með ykkar barni, ræðið tilgang þess að hafa farsíma, ábyrga netnotkun, áreiti tækjanna og truflun. En umfram allt hvetjum við ykkur til að taka þátt í þessum farsímalausu dögum með því að senda barnið ykkar ekki með farsíma í skólann.
Gaman væri ef öll fjölskyldan tæki þátt í þessu verkefni með okkur og hefði farsímalausa daga á heimilinu.