Hinn árlegi vinabekkjadagur fór fram í dag og heppnaðist vel. Þá hittast tveir árgangar og gera eitthvað skemmtilegt saman, það getur verið allt frá því að spila, föndra eða teikna saman í það að fara í ýmsa hreyfileiki íþróttahúsinu eða Hópinu.
Í dag hitti 1.bekkur krakkana í 7.bekk í íþróttahúsinu, 2.bekkur og 6.bekkur fóru saman í leiki í Hópinu, 3. og 8.bekkur voru saman í Hópsskóla, 4. og 9.bekkur áttu góða stund saman á Ásabrautinni sem og 5. og 10.bekkur.
Það er alltaf gaman að sjá hversu nemendum finnst skemmtilegt að eyða gæðatíma með hver öðrum og þá sérstaklega hversu dugleg þau eldri eru að leiðbeina og aðstoða þau yngri í því sem verið er að gera. Hér fyrir neðan má sjá fjölmargar myndir frá deginum.