Dagana 25. - 27. september tók 9. bekkur, sem annar af tveimur skólum á landinu, þátt í norræna verkefninu "Nordens dage" sem styrkt er og stjórnað af Nord-Plus, norræna ráðinu og fleiri aðilum. Verkefnið gengur út á að nemendur frá öllum Norðurlöndunum hafa samskipti sín á milli, búa til kynningarmyndbönd, vinna verkefni og tala saman á samskiptaforriti á netinu.
Nemendur kynnast jafnöldrum á hinum Norðurlöndunum og nota til tjáskiptanna skandinavísku málin dönsku, sænsku og norsku. Þessa þrjá daga voru nemendur einungis í þessum verkefnum og á lokadeginum spiluðu þeir samtímis spurningaleikinn Kahoot.
9.bekkur tók þátt í sambærilegu verkefni í fyrra og vegna þess hve vel tókst til var ákveðið að taka aftur þátt í ár. Þemað í ár var hafið og gerðu nemendur sameiginlegt verkefni með nemendum í skólum á Norðurlöndunum. Meðal annars fóru nemendur niður að höfn og tóku upp myndbönd.
Dönskukennararnir Arna Guðmundsdóttir og Valdís Kristinsdóttir sóttu undirbúningsnámskeið í Helsinki í Finnlandi í ágúst og stýrðu verkefninu í samstarfi við kennara á hinum Norðurlöndunum.