1.bekkur kom í heimsókn á Ásabrautina í morgun ásamt kennurum sínum, þeim Rósu Signý, Maríu Eir, Magneu og Rósey. Þau fóru í heimsókn á bókasafnið auk þess sem þau voru að vinna í verkefni í samfélagsfræði þar sem þau taka myndir af nemendunum fyrir utan húsin þeirra.
Krakkarnir borðuðu nesti á Ásabrautinni og léku sér úti á skólalóðinni. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá heimsókninni síðan í morgun.