Á mánudaginn, 30.apríl, er komið að hinni árlegu Mörtugöngu. Gangan er farin til að heiðra minningu Mörtu Guðmundu Guðmundsdóttir sem kenndi við Grunnskóla Grindavíkur og var mikill göngugarpur. Marta var Grindvíkingur, dóttir Guðmundar Finnssonar og Höllu Ágústsdóttur. Hún lét eftir sig eina dóttur, Andreu Björt Ólafsdóttur.
Marta hafði kennt við skólann í nokkur ár þegar hún veiktist af krabbameini en hún lést árið 2007. Eins og áður segir var Marta mikil íþróttakona og göngugarpur og fór meðal annars í magnaða göngu yfir Grænlandsjökul eftir að hún veiktist.
Minningu hennar viljum við hér í Grunnskóla Grindavíkur halda á lofti og er þessi ganga hluti af því.
Nánari upplýsingar um gönguleiðir og skipulag dagsins berast til nemenda og foreldra frá umsjónarkennurum. Gönguleiðir eru mislangar og miðast við aldur nemenda. Það spáir sæmilegu veðri en við minnum á að það getur verið kalt svona snemma sumars og því nauðsynlegt að klæða sig vel. Muna eftir húfu og vettlingum. Mikilvægt er að vera í góðum skóm og hafa með sér nesti.