Framtíđin er björt í Grindavíkurbć

  • Fréttir
  • 22. desember 2017

Félagsmiðstöðvar eru mikilvægur þáttur í velferðarþjónustu fyrir unglinga. Þar fer fram mikið óhefðbundið nám. Helstu markmið félagsmiðstöðva almennt eru að auka félags- og lýðræðisþátttöku ungs fólks, sinna forvörnum og veita börnum og unglingum stuðning og tækifæri til að sinna hugðarefnum sínum.

Markmiðið er að starfið sé uppbyggjandi, jákvætt og skemmtilegt og verði að mikilvægum hluta í uppbyggingu heilbrigðra og sterkra einstaklinga inn í samfélagið. Það er mín skoðun að það sé í þágu samfélagsins að félagsmiðstöðvastarf sé virkt, faglegt og hafi áhrif á þá sem starfið sækja.



Starfsfólk Þrumunnar setti sér nokkur markmið fyrir einu og hálfu ári. Ákveðið var að reyna að ná betur til unglingsstelpna, en mæting þeirra hafði áður verið dræm. Við náðum svo sannarlega því markmiði en í dag er mæting þeirra um 46% á móti 54% hjá strákunum.

Auk þess var ákveðið að bæta þjónustu hjá 10-12 ára börnum. Það gekk vonum framar og þurftum við að bæta við auka starfsmanni í starfið. Til að gera 10-12 ára starfið öflugara, sýnilegra og lýðræðislega ákváðum við að byrja með Minni-Þrumuráð. En í því eru tveir fulltrúar úr 5. bekk, tveir fulltrúar úr 6. bekk og þrír fulltrúar úr 7. bekk. Ráðið hittist 1-2 í mánuði. Það skipuleggur mánaðardagskrá með starfsmanni Þrumunnar og heldur utan um skipulag hvers viðburðar. Ráðið sér um að auglýsa alla viðburði og hefur það staðið sig með stakri prýði.

Í Minna-Þrumuráði læra börnin að halda utan um skipulag á viðburðum og lýðræðisleg vinnubrögð. Að vera í Minna-Þrumuráði er góð æfing fyrir komandi ár, þegar þeim stendur til boða að bjóða sig fram í nemenda- og Þrumuráð þegar þau eru komin á unglingastig grunnskólans.

Fyrir einu og hálfu ári var ákveðið að halda vel utan um mætingu unglinga í Þrumuna og skemmtilegt er að segja frá því að mætingin frá september-desember 2016 og 2017 jókst um 21%. Mætingatölur eru þó aðeins viðmið og ekki er hægt að hugsa um gæði starfsins út frá mætingu unglinga. Það eru einmitt þau kvöld sem fæstir mæta að maður nær bestu og innihaldríkustu samræðunum. Þó er ekki hægt að neita því að gaman er fyrir starfsfólk að sjá þessa aukningu og greinilegt er að Þruman sé eftirsóknarverð.

Fagþekking starfsmanna félagsmiðstöðva hefur aukist mikið á undanförnum árum og hafa síðustu rannsóknir í þessum málaflokki sýnt að félagsmiðstöðvastarf á Íslandi sé í fararbroddi í Evrópu. Aukin fagmennska og fagþekking í starfi félagsmiðstöðva er að miklu leiti komin frá vinsælli námsbraut við Háskóla Íslands, tómstunda- og félagsmálafræði. Félagsmiðstöðvarstarfsmenn nálgast málefni unglinga á annan hátt en skólinn gerir. Unglingar mæta í félagsmiðstöðina sína af frjálsum og fúsum vilja. Þar mæta þeir starfsmönnum á jafningjagrundvelli. Þeir eru ófeimnir við að ræða við starfsmenn um ákveðin málefni sem skipta þau máli og þeir fá tækifæri á að velta hugmyndum sínum og skoðunum fyrir sér, í návist vina sinna og kunningja, á óformlegri vettvangi.

Þegar starfsfólk og unglingar eru jafningjar þá hefur starfsfólkið tækifæri á að veita ráðgjöf á öðrum forsendum en t.d. foreldrar og starfsfólk skólastofnanna. Þetta mikla traust sem unglingar bera til starfsfólk félagsmiðstöðva fylgir mikil ábyrgð og því þarf hver félagsmiðstöð að vera búin starfsfólki sem er reiðubúið að standa undir henni.

Félagsmiðstöðin Þruman skipuleggur tómstundastarf fyrir 8-16 ára börn og unglinga í Grindavíkurbæ. Ég tel mikilvægt að starfið sé í höndum starfsmanna með menntun í faginu og af báðum kynjum. Þannig er auðveldara að koma til móts við þarfir sem flestra sem starfið sækja. Það er margt gott í starfinu í dag en alltaf er hægt að gera betur. Það eru mörg sóknarfæri í Þrumunni og það væri ánægjulegt að sjá starfið blómstra en frekar í náinni framtíð.



Þar sem ég þarf að láta af störfum í Þrumunni núna í desember, langar mig að nýta tækifærið og þakka öllum þeim börnum og unglingum sem ég hef unnið með síðasta eina og hálfa árið fyrir yndislegan tíma. Það hefur verið forréttindi að vinna með svona flottum einstaklingum. Þið eruð ástæðan fyrir því að manni hlakkaði til að mæta í vinnunna á morgnana og á kvöldopnanir. Þið eruð ástæðan fyrir því að framtíðin sé björt hjá Grindavíkurbæ.

Fyrir hönd starfsfólks Þrumunnar
Sigríður Etna

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Grunnskólafréttir / 17. nóvember 2023

Foreldrasamvera grunn- og leikskólabarna - streymi er lokiđ

Grunnskólafréttir / 2. júní 2023

Útskrift 10. bekkjar

Grunnskólafréttir / 6. maí 2022

Tóku ţátt í Frímó

Grunnskólafréttir / 11. febrúar 2022

Lćrt um flatarmál

Grunnskólafréttir / 8. febrúar 2022

Spurningakeppni unglingastigs komin af stađ á ný

Grunnskólafréttir / 27. janúar 2022

Almenn hamingja!

Grunnskólafréttir / 13. janúar 2022

Heimsókn frá Pálmari Ragnarssyni

Grunnskólafréttir / 13. desember 2021

8-liđa úrslitum spurningakeppni unglingastigs lokiđ

Grunnskólafréttir / 9. desember 2021

Skemmtilegir uppbrotsdagar

Grunnskólafréttir / 16. nóvember 2021

Dagur íslenskrar tungu

Grunnskólafréttir / 1. nóvember 2021

Gaman á hrekkjarvöku og í draugahúsinu

Grunnskólafréttir / 31. október 2021

1.bekkingar fengu körfubolta ađ gjöf

Grunnskólafréttir / 27. október 2021

Skáld í skólum!

Grunnskólafréttir / 21. október 2021

Svo skemmtilegt í heimilisfrćđi!

Grunnskólafréttir / 14. október 2021

Vel heppnađar uppbyggingasmiđjur á miđstigi

Grunnskólafréttir / 12. október 2021

Glćsilegar grímur 5.bekkinga

Grunnskólafréttir / 12. október 2021

Góđur vinafundur ţegar leikskólabörn heimsóttu 1.bekkinga

Grunnskólafréttir / 7. október 2021

Forvarnadagur forseta Íslands

Nýjustu fréttir

Hvernig get ég stutt barniđ mitt á óvissutímum?

  • Grunnskólafréttir
  • 1. desember 2023

Skólaslit í 1.-9.bekk og viđurkenningar

  • Grunnskólafréttir
  • 6. júní 2023

1.bekkur skellti sér í árlega ferđ

  • Grunnskólafréttir
  • 19. maí 2023

Glćsileg árshátíđ á miđstigi

  • Grunnskólafréttir
  • 25. mars 2022

100 daga hátíđ hjá 1.bekk

  • Grunnskólafréttir
  • 9. febrúar 2022

Rökkurró í febrúar

  • Grunnskólafréttir
  • 4. febrúar 2022

Flytja í nýbygginguna viđ Hópsskóla

  • Grunnskólafréttir
  • 26. janúar 2022

Gleđi og ánćgja á litlu jólum eldri nemenda

  • Grunnskólafréttir
  • 20. desember 2021

Logn og stilla í útikennslu

  • Grunnskólafréttir
  • 14. desember 2021

Heimsókn frá Má Gunnarssyni

  • Grunnskólafréttir
  • 13. desember 2021

Upplýsingatćkni í 3.bekk

  • Grunnskólafréttir
  • 26. nóvember 2021