Í þessari viku efnir Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna til eldvarnarátaks. Nú fer í hönd sá tími sem flestir kveikja á kertum og nota jólaljós, það er því aldrei of varlega farið og gott að fá góða bandamenn í börnunum til að minna mömmu og pabba á eldvarnir.
Ásmundur Jónsson slökkviliðsstjóri heimsótti 3. bekk í morgun, fræddi þau um eldvarnir og lét börnin leysa eldvarnargetraun. Með Ásmundi í för voru fulltrúar frá Lionsklúbbi Grindavíkur en Lionsmenn gáfu börnunum litabókina Lærum allt um brunavarnir á heimilinu.
Ásmundur fór yfir helstu atriði sem gilda varðandi eldvarnir og hvernig bregðast skuli við. Þá ítrekaði hann m.a. mikilvægi reykskynjara og þess að vera vakandi fyrir því að slökkva á seríum, kertaljósum og að passa að hafa tölvur og önnur slík tæki ekki í hleðslu á rúmi eða öðru sem orðið getur eldsmatur.