Grunnskóli Grindavíkur fékk Grænfánann vorið 2016. Í vikunni hélt umhverfisnefnd skólans sinn fyrsta fund þar sem farið var yfir vinnu vetrarins og þau atriði sem nefndin telur að þurfi að leggja áherslu á voru rædd. Umhverfisnefndin er skipuð fulltrúum nemenda, starfsmanna og foreldra.
Markmið grænfánaverkefnisins er meðal annars að:
• Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
• Efla samfélagskennd innan skólans.
• Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
• Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
• Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
• Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
• Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.
Reynt verður að tengja útikennslu og umhverfismál inn í sem flestar greinar og almennt í skólastarfið. Verkefni þessu tengd eru til dæmis verkefnið Hér og nú sem tengist vellíðan nemenda. Einnig má nefna nýja nestisstefnu skólans auk þess sem einn náttúrufræðitími á viku er ætlaður til útináms ásamt því að námsefni í náttúrufræði verður í þróun fyrir alla árganga skólans.