Bókasafnið Grindavíkur er sannarlega komið í jólaskap og er ýmislegt skemmtilegt framundan bæði fyrir almenna bókasafnsgesti og svo nemendur í Grunnskóla Grindavíkur. Þá streyma jólabækurnar inn og eru Grindvíkingar hvattir til þess að kynna sér úrvalið.
Í desember verður rithöfundaupplestrarkvöld í samstarfi við kaffihúsið Bryggjuna. Rithöfundar sem gefa út bækur fyrir jólin munu mæta og lesa upp úr verkum sínum. Þessi viðburður verður nánar auglýstur á heimasíðum og fésbókarsíðum.
Þá verður Bókasafn Grindavíkur með upplestur fyrir nemendur í Grunnskóla Grindavíkur, bæði í Hópsskóla og á Ásabraut. Fjórir rithöfundar mæta og lesa upp úr verkum sínum.
Það eru Jenný Kolsöe sem les upp í Hópsskóla, Hilmar Örn Óskarsson sem les fyrir 4.-6. bekk, Birgitta Hassel sem les upp fyrir 7. til 10. bekk og Marta Hlín Magnadóttir sem einnig les fyrir 7.-10. bekk. Verður nemendunum safnað saman á sal.
Þá er prófatörn framundan og er háskólafólk minnt á að það hefur aðgang að lesstofum í bókasafninu, bæði á opnunartíma og utan venjulegs opnunartíma. Þeir sem vilja komast í lesstofuna utan opnunartíma geta haft samband við Andreu Ævarsdóttur forstöðumann bókasafnsins.
Þá minnir bókasafnið á laugardagsopnunina en opið er frá kl. 10-14 alla laugardaga.